kanill, kanall og kannski bara


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Búin að ætla að elda grjónagraut svooo lengi. Fór sérstaklega út í búð til að kaupa nýmjólk og kanil. Svo brenndi ég hann! Hann var svosem alveg ætur ef maður hellti óhóflegu magni af kanilsykri yfir, en þetta er samt svo svekkjandi :(
óþarft að taka fram að restin fór í klósettið. sat þar fast nokkur niðursturt... þétt í þessum graut.

Síðustu helgi héldum við innflutningspartý hér á Austurenda. Vel mætt, örugglega nálægt 60 manns. Drukkið, dansað og leikið sér. Búsið kláraðist, og þá fór nú að draga verulega úr löngun fólks til að vera hérna. Maður verður að hafa eitthvað að súpa. En þetta tókst vonum framar og allir virtust mjög ánægðir. Við vorum meira að segja ekki allan sunnudaginn að þrífa!




Þegar við vorum með ryksuguna á lofti og ajaxið í tuskunum urðum við vör við einhver læti hér úti á götu.
Rukum útí glugga. Löggan að handtaka mann, blóðugur. Svo var öllum götum lokað hér í kringum okkur. Rannsóknarlöggan mætt. Greinilega höfðu verið átök hér í húsi rétt hjá, því við sáum blóð á götu og dyrum. Verið var að rannsaka allt hátt og lágt. Við urðum að fara út að forvitnast. Þetta var orðið verulega spennandi þegar kafarar mættu á svæðið og hoppuðu út í kanalinn til að leita mjög systematískt að einhverju. Höfum heyrt að þeir hafi verið að leita að hnífi. Það er á tímum eins og þessum sem maður óskar þess að kunna hollensku, því við vitum enn ekki hvað gerðist. Hver var særður, hver var ástæðan og hvers var leitað!! En spennandi var það. Vitum bara ekki hvað það var.

Síðasti vinnudagurinn í dag. Samkeppnin er ekki í alveg nógu góðum farvegi. Ekki nægur tími sem fer í þessa vinnu. Kennarinn/yfirmaðurinn allt of upptekinn í öðrum hlutum. en það er reyndar komin góð hugmynd á teikniborðið núna. Lýst vel á.

þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur flogin! flýg semsagt á fimmtudag og er enn frekar róleg. samt kippist ég upp reglulega og klappa saman höndum óeðlilega hratt og segi "vííí" :) semsagt nokkuð spennt!

nú er bara að taka til magalyfin... það er greinilega ansi öruggt að maður mun fá í magann þarna úti. örverurnar eitthvað ólíkar því sem maður á að venjast. þarf að kaupa eitthvað magalyf til að vera öllu viðbúin. Hvernig býr maður sig undir menningarsjokk??

Um helgina var íslenskt þema. Matur hjá Rúnu og Adriaan á föstudag, ásamt Árna. Slúrp, góð pizza! Bjór, kjaftað og spilað. Svo kjúlli í saté sósu hjá Hjördísi Sóleyju, Kára og Styrmi á laugardag. Svo spjallað við litlusystur í símann á sunnudag. Já... má ekki gleyma. Hjördís og Kári komin með blogg endilega kíkið á. Þar má meðal annars lesa um það að bóndinn á því heimili varð þrítugur í dag. Skál fyrir því!

Bendi svo á stórskemmtilegt verkefni þar sem ungur maður hefur búið til ljósmyndasamansafn, þar sem hann sýnir andlitsmyndir af sjálfum sér. Hann tók mynd af sér á hverjum degi í ÁTTA ÁR! og setti saman í syrpu. Bráðskemmtilegt.
Þó finnst mér hann hafa "stolið" hugmyndinni af mér. Ég veit ekki hvað ég var gömul, en ég var innan við tíu ára, þegar ég ákvað að taka myndaseríu af barninu mínu. Fyrsta árið daglega, svo vikulega, svo mánaðarlegar, svo árlega allt líf þess. Svo eftir að ég dæi myndi einhver annar sjá um að taka myndir af syni mínum eða dóttur þar til hann eða hún myndi deyja. Svo yrði gefin út bók eða búið til vídeó eða hvað það verður nú sem hægt verður að gera í framtíðinni. Látum okkur nú sjá. Segjum að ég eignist barn hypothetically speaking, þegar ég verð 35. Það er árið 2010. Segjum svo að barnið mitt verði 85 ára. Það er 2095. Getur einhver giskað á hvaða tækni verður í margmiðlun það árið?? :) Þetta verður flott verkefni. vííí, hlakka til. sæðisgjafi anyone?

|

Hlekkir