Eins og svo margar setningar frá honum Finni Arnóri bróðursyni mínum, þá er titill þessarar færslu fenginn að láni frá þeim stutta. Þetta segir hann þegar hann er spenntur og eitthvað fer eftir hans óskum. T.d. þegar lest tekur af stað, eða hann skorar mark. Ég tek þetta mér í munn þegar ég er ánægð með nýjar fjárfestingar, eða þegar hjólið mitt virkar 10 sinnum betur því að ég lagaði það. Þetta er farið að breiðast út og heyri ég víu víu, hvar sem ég fer. Líkt og "ó nei!" setningin hans.

Já, er búin að vera upptekin þessa vikuna við að sanka að mér nýjum hlutum.

Tvenn ný gleraugu urðu eign mín, og er ég afar stolt af þeim báðum. Þau munu veita mér innsýn og skarpskyggni næstu árin. Ég mun sjá heiminn í nýju og réttara ljósi og aðrir munu sjá mig sem afar glögga manneskju sem hefur vit á gleraugum. Glampavörnin mun bæði koma í veg fyrir að flassljós ljósmyndara eyðileggi myndir þeirra og stígi mér til höfuðs.
Þessi gleraugu eru gjöf frá móður minni og stjúpföður og er ég þeim afar þakklát fyrir örlæti sitt. Takk!


Eitt stykki ný myndavél komst í hendur síns nýja eiganda í gær. Ég vakti svo til 5 í nótt við að prófa gripinn og lesa þykka leiðbeiningabók. Ég hef lent í því síðustu vikur þegar ég hef viljað taka myndir að gamla myndavélin, Sony Cybershot, hefur frosið, myndin flöktað, ekki hefur tekist að taka mynd, hef þurft að taka rafhlöðurnar úr henni, setja þær í aftur, loka og ræsa aftur, bara til að taka eina mynd og byrja ferlið enn á ný. Var orðin frekar þreytt á að biðja samnemendur mína að taka myndir fyrir mig. Þá er réttlætingarkafla þessarar færslu lokið.
Ég tók því þá ákvörðun að ég þyrfti nauðsynlega að eignast nýja myndavél. Fór því í MediaMarkt og skoðaði úrvalið sem var ansi mikið. Eftir nokkrar heimsóknir í búðina, samanburðarrannsóknir á amazon.com og stuttri skoðun á bankareikningi mínum ákvað ég að festa kaup á þessari hérna. Hún heitir Panasonic Lumix fullu nafni, en ég kalla hana bara Lumix. Hún er nýi besti vinur minn og hún líkt og gleraugun mun hjálpa mér að sjá hluti sem ég annars hefði ekki séð (12x optical zoom). Hún mun einnig gera mér kleift að varðveita minningar, og nóg af þeim (512Mb minniskort og 2 lithium rafhlöður). Hún mun láta heiminn líta út fyrir að vera í ögn meira jafnvægi en hann er (stabilizer) og aftur, eins og gleraugun, mun þessi gripur láta mig líta betur út, sem er ómetanlegur fítus. Þessi myndavél er gjöf frá hr. Visa og mun ég á næstu vikum gefa honum eitthvað fallegt í staðinn. Hef heyrt að hann sé hrifinn af peningum. Hef honum bara inneignarnótu í sparireikningi mínum í Landsbankanum. Vona að hann verði jafn hrifinn af þeirri gjöf og ég er af þessari myndavél sem hann gaf mér.

víú víú!!





Já, nokkkur hundruð manns eru búnir að klukka mig. Eða að minnsta kosti tveir. Þannig að here goes...

4 störf sem ég hef unnið um ævina:
þingvörður
lögreglumaðúr
talsímavörður
au-pair

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
happiness
muriels wedding
dirty dancing
annie

4 staðir sem ég hef búið á:
reykjavik
atlanta
seinajoki
delft

4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:
desperate housewifes
sex and the city
lost
judging amy

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
kalifornía
amsterdam
basel
mallorca

4 síður sem ég heimsæki daglega:
gmail
mbl
ruv
juniblu og aðrar bloggsíður

4 máltíðir sem ég held upp á:
sushi
lambalæri
kjötsúpa
súkkulaði

4 bækur sem ég les oft:
101 reykjavík (sem ég las nokkrum sinnum mér til endalausrar gleði)
skólabækur

4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna:
í hlýindunum á Íslandi
á skíðum
á strönd
á suðurpólnum (bara svona til að athuga hvernig stemningin sé þar)

4 bloggarar sem ég klukka:
æj, held sé búið að klukka alla í heiminum...



Í Hollandi eru óteljandi reiðhjól, þau taka óhemju pláss og fá gríðarlega mikið vægi í skipulagninu borga. Sem er gott.

Á almenningssalernum í Hollandi er einungis kalt vatn í krönum. Sem er slæmt.

Hollenskir karlmenn í yngri kantinum greiða hárið upp í loft, með einhversskonar geli eða brillíantíni. Sem er slæmt.

Í Hollenskum súpermörkuðum er ekki selt lambakjöt, sem er slæmt, en aftur á móti er ógurlegt úrval af ostum, sem er gott, og sætabrauði, sem er slæmt.



Hér kemur löööng ferðasaga. Vek athygli á nýjum myndum.

1. feb

Eftir tveggja tíma svefn fór ég með ritgerðina upp í skóla, prentaði og skilaði. Á meðan bjó Ren til samlokur fyrir ferðina og Hendrik fór til Rotterdam að ná í bílaleigubílinn. Fengum þennan fína fína bíl, Opel Zaphira, svartan og gljándi beint úr kassanum. Lögðum af stað kl. 14, sátt eftir margra daga erfiða törn. Stefnan tekin á Köln í Þýskalandi. Þoka, kalt, lítið útsýni.






Köln: komum um kvöldmatarleyti, vorum búin að fá inni hjá Stephan æskuvini Hendriks. Stephan er hinn hressasti gaur, sem hefur áhuga á gömlum hlutum og skrýtnum, íbúðin eins og dótabúð. Hann er með sitt eigið fyrirtæki sem sérhæfir sig í að selja og miðla dóti, eins og bíósætum sem hann kaupir í massavís og gerir upp, hann kaupir notaða flugvéla-framreiðslu-vagna, gerir þá upp og ætlar að selja sem heimabari og hirslur.

Fundum loksins götuna hans, fórum á ítalskan pizzustað, og á skemmtilegt pöbbarölt. Barir í Köln eru flottir, og andrúmsloftið mjög skemmtilegt. Skriðum heim klukkan 3 eftir nokkra bjóra og sambúkka skot.




2. feb
Skoðuðum Köln, fórum með tram niður í bæ, fórum í Dómkirkjuna, sem ég man eftir að hafa séð þegar ég var 9 ára. Alveg jafn mikilfengleg núna og þá. Fórum svo á Ludwig-listasafnið sem er bak við kirkjuna og eyddum þar hátt í 3 tímum. Popp-listin stóð upp úr.
Subway að borða, sáum Peter Zumthor byggingu rísa, röltum um. Mjög kalt í Köln, mínus 5 og rakt. Fórum heim til Stephans, pökkuðum okkur niður og vorum lögð af stað út úr bænum um 5 leytið. Stefnan tekin á Speyer, þar sem foreldrar Hendriks búa. Stoppuðum á leiðinni í smábænum Krefeld, þar sem við sáum tvær Mies van der Rohe byggingar, upprunalega byggðar sem íbúðarhús, hlið við hlið, eru eru núna safn.
Komin á þýskar hraðbrautir og hraðinn aukinn, líka þar sem mamma Hendriks beið okkar með heitan mat :)

Komum til Speyer, byrjuðum á að heilsa upp á pabba Henriks sem býr í smábæ við hliðina á Speyer, fórum svo til mömmu hans og borðuðum góðan mat, hittum annan æskuvin Hendriks og spjölluðum. Ren var að koma þarna í annað skipti þar sem hann eyddi jólunum þarna ásamt Hendrik. Hann var stoltur þegar hann gat sagt til vegar í Þýskalandi. Kominn alla leið frá Malaysíu.


Ætlunin að vakna snemma og ná arkitektúr-leiðsögn um Vitra hönnunarsafnið í Weil am Rhein.

3.feb
Komin í Vitra hönnunarsafnið kl. 12, eftir 2 tíma akstur frá Speyer. Komumst þá að því að safnið var að stórum hluta lokað þennan dag, hefðum ekki getað farið inn í Zaha Hadid slökkvistöðina, né Tadao Ando ráðstefnuhúsið. Ákváðum því að breyta um stefnu og skella okkur beint til Frakklands og sjá kirkjuna hans le Corbusier í Ronchamp. Komum þangað kl. 15. Búin að vera þoka alla leiðina og takmarkað útsýni, en um leið og við ókum inn í bæinn og upp hæðina þar sem kirkjan stendur braust sólin út og við eyddum einum og hálfum tíma í kirkjunni sem nýtur sín best þegar sólarljósið flæðir inn um litríka og djúpa gluggana. Þetta var hápunktur ferðarinnar, kirkjan er stórfengleg og umhverfið magnað. Maður situr inni í kirkjunni, og fer á einhvern annan stað andlega. Þetta er ekki bara bygging sem hefur verið formuð á ótrúlegan hátt í fallegu landslagi, það virðist vera eitthvað yfirnáttúrlegt á sveimi þarna. Núna langar mig að koma þarna og vera viðstödd messu, og heyra kóroinn syngja af svölunum, bæði innandyra og utan. Að sjálfsögðu mætti einnig segja að tilhlökkunin við að koma þarna væri búin að mynda þessa skoðun á byggingunni fyrirfram og magna upp upplifunina.


Fórum frá Ronchamp í vímu eftir upplifunina, og ókum sem leið lá til Basel í Sviss, í gegnum ótal litla smábæi og dulúðleg trjágöng í þoku og kulda. Landamærin voru lítið mál, eitthvað höfðum við haft áhyggjur að Ren fengi ekki inngöngu, en hollenska landvistarleyfið hans reddaði þessu. Fundum hostelið okkar eftir dágóða leit, komið myrkur, klukkan að verða átta. Tékkuðum okkur inn og fórum beint niður í bæ, fengum okkur kebab, kíktum á barina, fórum í litlu-Basel sem er handan við ánna Rín. (Rín er áin sem við ókum eftir nánast alla leiðina, og fórum yfir ótrúlega oft. Vildi núna að ég hefði talið skiptin) Þegar við vorum orðin mett af bjórum og búin að sálgreina hvert annað, ákváðum við að koma okkur heim í svefn. Sporvagnar voru þá hættir að ganga, og strákarnir tóku það ekki í mál að taka leigubíl (eins og ég hafði stungið uppá). Því röltum við af stað og klukkutíma seinna vorum við komin upp á herbergi. Villtumst á leiðinni, ætluðum aldrei að finna réttu leiðina. Upp kom keppnisskap í strákunum og ég leyfði þeim að útkljá þetta, verandi sjálf gersamlega áttavillt þarna. Þeir fundu þó að lokum rétta leið og það var þreytt fólk sem skreið upp í rúm það kvöld. Við vorum í herbergi með rúmum fyrir 3. Eitt einbreitt rúm og eitt tvíbreitt. Herramennirnir sem þeir eru leyfðu mér að fá einbreiða rúmið og þeir deildu rúmi þessa nótt og næstu. Þeir eru orðnir nánir vinir. "Honey will you turn out the light" var það síðasta sem ég heyrði þessa nótt.

4. feb

Eyddum öllum deginum í Basel, ákváðum að eiga einn dag án nokkurs aksturs. Vöknuðum frekar seint, fórum í bæinn og fengum okkur kaffi og kruðerí. Tókum svo arkitektúr-skoðunarferð um Basel. Fórum í Beyeler-safnið eftir Renzo Piano. Byggingin er kyrrlát og fellur vel inn í umhverfið, og safnið sjálft var stórfenglegt, þ.e. listaverkin. Því næst fórum við að byggingu eftir Herzog & de Meuron sem hýsir Stellwerk, eitthvað tengt merkingum á lestum. Hún stendur við lestarteina og brú.
Þetta er örugglega sú bygging sem mér þótti tilkomumest fyrir utan Ronchamp. Fengum því miður ekki að fara inn í hana, en að utan er hún sérstaklega spennandi, bæði í formi og efni. Koparrenningar sem hylja hana en svo eru þeir sveigðir til að hleypa inn birtu um gluggafasöðu sem er innan við koparinn. Svo sáum við aðra eftir H&dM sem er safn og við vorum ekki svo hrifin af henni.
Fórum heim, fengum okkur kríu eftir labb dagsins. Fórum svo og fengum okkur ekta svissneskt osta fondue. Rosa gott en frekar einhæft. Brauð og bræddur ostur. Kíktum á tvo bari og fórum snemma heim því förinni var heitir í Vitra safnið á sunnudagsmorgninum.

5. feb
Tékkuðum okkur út af hostelinu um ellefuleytið og ókum til Vitra safnsins sem er í 10 mínútna fjarlægð frá Basel, en er í Þýskalandi, í borginni Weil am Rhein. Þar fórum við í leiðsögn um safnið, en myndirnar tala sínu máli. Tengillinn á þær er hér hægra megin. Mögnuð ferð. Hlakka til að fara í þá næstu.



komin heim aftur til Delft úr frábæru ferðalagi. Skemmtum okkur konunglega og allt gekk rosalega vel. Sáum aragrúa af fallegum byggingum og spennandi rýmum.

Á morgun byrjar ný önn í skólanum. Hlakka til þess að byrja á nýju verkefni, held það verði mjög krefjandi og skemmtileg. En meira um það seinna. Ferðasagan og skrilljón myndir koma á morgun.

Erum með bílaleigubílinn fram á miðvikudag og ætlum að fara í IKEA og versla hluti sem við nennum vanalega aldrei að dröslast með heim á hjóli. Eins og 90 cm breiða dýnu.

Gaman að sjá að fólk tók áskoruninni um að skrifa í kommentin. Hvet ykkur eindregið til að halda því áfram :)

Una ökuþór


Hlekkir