Á réttri hillu?


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Tók þetta greindarpróf. Því ég er að læra fyrir próf. Þá æfir maður sig með því að taka próf á netinu.

Meðal niðurstaðna var upptalning á störfum sem ættu að eiga við mig.

Because of the way you process information, these are just some of the many careers in which you could excel:

* Archaeologist
* Detective
* Psychologist
* Sculptor
* Architect
* City planner
* Chief executive

jahá. Detective, Psychologist, Architect, City planner. Kannast einhver við að ég hafi komið nálægt þessu?

Þetta er annað en áhugasviðsprófið sem ég tók í H.Í. á sínum tíma. Um það leyti er ég var að falla í sálfræðinni. Þar var mér sagt að ég ætti að vera herforingi. Er það svona Chief executive? Leiðinlegt að herinn sé farinn. Missti af atvinnutækifæri. Skrái mig í íslenska herinn hans Bjössa Bjarnasonar við tækifæri.

Og ef ég fer í herinn, þá get ég sameinað það fornleifafræðinni. Í hernum er maður alltaf að grafa skotgrafir. (Hernaður hefur ekkert breyst síðan í Heimsstyrjöldinni síðari er það?) Maður hlýtur að rekast á eina tvær hauskúpur á meðan á þeim greftri stendur. Fyrir utan auðvitað allar þær fersku sem falla til.

össöss

oj

|

Hlekkir